Bíótöfrar er hresst íslenskt kvikmyndapartýspil sem sameinar fróðleik, tónlist, húmor og keppnisskap í eitt bráðskemmtilegt spil.
Bíótöfrar innihalda 550 spurningaspjöld í fjórum skemmtilegum flokkum:
Þrennan – Trivía Tengileikur – Paraðu saman leikara og kvikmyndir. Kvikmyndatónlist – Skannaðu QR-kóða, hlustaðu á tónlistina og giskaðu á kvikmyndina. Gullkorn – Giskaðu á kvikmyndina út frá frægum tilvitnunum og slagorðum.
Bíótöfrar er tilvalið spil fyrir spilakvöld með vinum, fjölskyldu eða öðrum kvikmyndaáhugamönnum.
Spilaðu, njóttu og láttu reyna á hversu mikill kvikmyndasnillingur þú ert!
Ef þú velur eitthvað endurnýjast síðan í heild sinni.